...Jennsínublogg...
Design
12.08.2006 16:26:47 / jenny

jjenny.bloggar.is

Ég hef ákveðið að fá mér nýtt blogg.... Nú er nýtt ár að byrja í skólanum, ný íbúð og margt nýtt og þá er tilvalið að breyta til...

jjenny.bloggar.is

Endilega haltu áfram að lesa og fylgjast með mér.... takk fyrir:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 17:40:45 / jenny

ójjj....

Ég held ég sé með flóa bit á bakinu... ég var að mæla eitt stykki hús í gær og garðurinn var víst fullur af þeim. Ojjjj... þetta var heldur ekkert voðalega smekklegt hús! Kannski líka ástæða  fyrir að þau séu að breyta því alveg:)

Allir eiga afmæli þessa dagana... Enda er þetta líka fínn mánuður. Ef að ég hefði komið í heimi eins og planið var ætti ég afmæli á laugardaginn alveg eins og Amma og líka litla Elma Jenný. Hversu mikil snilld væri ef ég hefði fæðst þá?? Sko Amma mín heitir Jenný Haraldsdóttir og ég líka, og svo ef við hefðum átt sama afmælidag líka, þvílík tilviljun:)

Nú þegar ég fæddist svona mikið fyrir tíman, hvort er ég þá tvíburi eða ljón í rauninni. Ég hef einkennin úr báðum merkjunum held ég. En hvernig virkar þetta?

Svo fyndið að stjörnumerkin eiga ótrúlega vel við fólk að það er eigilega ótrúlegt! og fólk sem er í sama merkinu er líka mjög líkt... Mér finnst ykt gaman að pæla í þessu en ekkert of mikið samt, þá verður maður bara eitthvað crazy:)

Guðný Ella og Hjörtur eiga t.d. afmæli í dag... tillykke!! Eru þau eins?? Þau eru svipuð finnst, alla vegana eins og ég þekki þau..

Svo á Addý frænka afmæli á mánudaginn.. Og Lone dönsk vinkona mín 20 ágúst...alltaf gaman að eiga afmæli:)

Ég var eitthvað voðalega mikið að velta þessu fyrir mér í vinnunni í dag. Hugsaði reyndar slatta mikið um ýmsa hluti... ég var bara ekki að geta gert það sem ég átti að gera. Svona er maður stundum... allir dagar eru ekki eins:) Sem betur fer...

Svo gerði ég nýja skoðanakönnun um daginn... :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 18:17:53 / jenny

Verslunarmannahelgin....:)

Jæja núna er ég komin í 4 daga frí, eina fríið mitt held ég bara..:) þetta verður ljúft!!

AAJ teamið (aka stjanan, pannan og pennýið)- stefnir norður!! Hvert stefnir þú?

er ekki best að henda í eina vél eða svo.... :)

Annars er ég bara hress, hlakka svo  til að fara út.... langar eigilega að sleppa að kveðja! Mér leiðist það...

Annars átti Hjalti afmæli á þriðjudaginn... ´fór í sushi heim til hans... mmmm... love sushi!

AAJ grilluðu hjá Önnu Fríðu í gær:)

Btw síðasta helgi var æði pæði....Ofurmyslurnar hittumst á föstudaginn.... vá það var svo gaman hjá okkur:) love you girls...

Sigrún mig langar að sjá nýja hárið þitt!!!

jæja bæbæ.... nenni ekki meir!


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 22:16:54 / jenny

Liðinn tíð...

Ótrúlegt hvað tímarnir breytast... ég var enda við að fara í gengum skápinn minn. Öll þessi föt sem maður á og er LÖNGU hættur að ganga í.Afhverju er maður að geyma þetta. Ég hef ekki snert þessi föt í svona ár eða meira. Þannig mér fannst tilvalið að fara í gegnum allt draslið sem maður er búin að hrúa þarna inn. Alls skonar dót sem maður vildi geyma í den:) En núna er "den" liðið og tími til að henda þessu. Ætlaði mér reyndar að fara í kolaportið og selja en ég efast um að ég hafi einhverntíma fyrir það. Ég verð farinn eftir mánuð og það verður fljótt að líða.

Eru þið að grínast hvað ég sjálf hef í rauninni verið alls skyns útlitandi.. með svart stutt hár, ljóst stutt og sítt, ýkt hvít með dökk brúnt hár, ýkt brún með ljóst hár og ég veit ekki hvað... hehehe og í  dag er ég bara með minn eiginn hárlit og hárið eitthvað út og suður klippt... stutt þarna og sítt þarna. Og ég er að segja ykkur mér hefur aldrei liðið betur!!

Málið er bara að þegar maður er að reyna að vera einhver annar eða bara eitthvað annað en maður er þá líður manni bara ekkert vel.

Ég er alls ekki að segja að ég hafi átt leiðinlegt og súrt líf, alls ekki. Mér finnst ég búin að upplifa ýkt mikið og hef átt æðislegar stundir. Málið er bara að lífið verður alltaf betra og betra. Kannski er það það að maður nær að meta það betur.

Svo er líka alltaf ástæða fyrir öllu. Frekar erfitt að sætta sig við það en maður sér það alltaf eftirá. Maður fattar stundum löngu löngu eftir að eitthvað skeður ... "Já núna sé ég afhverju þetta skeði".

Lífið er bara skondið fyrirbæri og ótrúlega gaman að því. En eitt sem ég hef ákveðið er að gera ekkert of mikil plön í lifinu mínu. Það er svo sárt ef plönin bresta. Ég er bara með fullt af markmiðum og mörg þeirra mjög há... held líka ef ég væri ekki með þau væri ég ekki á þessum stað í lífinu sem ég er í dag.

Ef ég nefni nokkur markmið:

- labba esjuna, hef aldrei gert það.

- fara á hestbak, mig er búið að langa það síðan ég kom í sumar.

- útileigu.

-heimsókn til Soffíu Tinnu.

-vera með eigin arkítektarstofu.

-búa til fatalínu

-fara í 7 mánaðar heimsreisu.

-og margt fleira...

 

Ég er nú bara 22 ára og á vonandi nóg eftir....


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 18:06:38 / jenny

Afmæli afmæli afmæli...

Alltaf á einhver afmæli... Mig langar að óska henni Telmu minni innilega til hamingju með 22 ára afmælið! Skvísan á afmæli í dag... Njóttu þess í botn elskan mín og takk fyrir frábæra afmælisveislu! Þetta var ekkert smá gaman:) En það var nú meira draslið að týna þér og Ingu í bænum...

Ég var s.s. í afmæli hjá Telmu á laugardaginn, ótrúlega gaman að hitta þessar skvísur aftur. Við enduðum mis skrautlegar...hehehe. Alla veganna endaði ég, laufey og guðný á njálsgötunni... Takk fyrir góða þykku á sunnudaginn gells:) mest nice þrátt fyrir kvölina...hehe! En pitsan og hælaskórnir björguðu þessu:)

Annars er bara rétt rúmur mánuður þangað til ég held aftur út. Ofurmýslurnar mínar verða nú út um allan heim næstu árin, maður veit varla hvort að maður á eftir að hitta þær eitthvað næsta árið. Liggur við að maður fær tár í augun... á eftir að sakna þeirra mest!!

Ég í Danmörkur að læra arkítekt

Arna í L.A. að læra að vera leikkona

Ingibjörg í Ungverjalandi að læra lækni

Steinunn í London (hér og þar samt) að meika það með Nylon

Anna Fríða heima á Íslandi í margmiðlun

Sigrún að klára viðskiptafræði hérna heima

Gaman að þessu öllu saman. Ég ætla koma mér heim til Ömmu og fá eitthvað að borða. Yndið var að bjóða mér í mat..

BTW... Barinn í kvöld klukkan 22:00, Birna skvís að spila:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 17:34:15 / jenny

Soffía Tinna!!

Til hamingju með afmælið elsku gullið mitt:)

Love you


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 18:40:21 / jenny

Hver ert þú??

"Eru lömb í útrýmingarhættu?" heyrði Sólveig stjúpmamma mín í dag í nóatúni. Þetta var einhver ung stelpa sem var að vinna á kassa í nóatúni. Ég held að það hafi ekki verið svolítið tómt í heilabúi hennar.

Mér finnst nú eigilega bara ótrúlegt að júlí sé hálfnaður... ég á bara einn og hálfan mánuð eftir herna:( Afhverju þarf tíminn alltaf að líða svona hratt.

Það er heldur betur búið að vera nóg að gera hjá mér. Mikið að gera í vinnunni líka.. Ég er að fara hitta fólk á morgun í breiðholti og reyna selja þeim það sem ég er búin að vera gera. Eins gott að geti vaknað og komið mér í sturtu áður en ég fer í vinnunni. Ég er nefnilega bara vön að hoppa í fötin og hlaupa í næsta hús (er að vinna nokkrum húsum frá mér, ótrúlega nice)... Ég ætla nú að líta aðeins betur út á morgun..hehehe

Fór í afmæli til Halla bróðir hennar Ömmu Jennýjar, hann var 70 ára í gær. Hann tekur sig ekkert smá vel út, er ennþá að vinna á fullu og án djóks þá gæti hann verið 50 ára. Svona ætla ég mér sko að vera...:)

Það var æðislegt að hitta alla ættina, bæði þau sem er alveg náskild mér og svo allir hinir líka. Maður fékk svona update hvað fólk væri að gera. Svo er ég líka orðin eldri og hef kannski aðeins meiri áhuga á því sem fullorðna fólkið segir en ég hafði fyrir nokkrum árum.

Svo var nú ekki leiðinlegt að fá hrós frá hinum og þessu og að ég ætti sko að teikna hús fyrir þennan og hinn þegar námið væri búið. Þetta var ekkert smá gaman:)

Svo er ég búin að vera asni mikið með henni Örnu minni sem er bara búið að vera æði!! Svo er svo yndislegt að geta hangið á kaffihúsi án þess að hafa áhyggjur af einhverju...

Ætla að halda mér milli Pabba og Sólveigar í kvöld... Og knúsa Theodóru... hef ekki verið mikið heima. Hef eigilega ekki þolinmæði í það bara að sitja og horfa á sjónvarpið. Þið sem þekkið mig vitið að ég vill helst af 5 manns í kringum mig.. Þannig er ég bara:)

Svo á Egill Hrafn afmæli á morgun... 1 árs litli stubburinn:)

Jæja best að fá sér grjónagraut með familíunni...

Hafðu það gott kæri lesandi... (hehe þetta er svona setning eins í tímariti).


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 18:44:55 / jenny

Marg búið að ske....

Hvað er búið að ske:

- alltaf í vinnunni á daginn

- hitta hina á þessa á kvöldin

- lífið hefur breyst mjög mikið

- ég fékk B í einkunn í skólanum, ein af þeim hæðstu í bekknum, ekkert smá gaman.

- Ég á bestu vini í heiminum

- Á bestu fjölskyldu í heimi

- Fór til spákonu í gær.... Ég á eftir að ná mjög langt. Spennó sjá á hvaða sviði... hehe..

- Steinunn "nylon" er að standa sig svo vel... 5 sæti í bretlandi!! Þær eru svo duglegar!

- Þurfti að vera sæt og fín í bankanum...hehe... gekk auðvitað vel:)

- Ég er búin að klippa mig... Ekkert smá flott. Fór samt frekar mikið í burtu en mjög flott finnst mér.

- Borgaði tryggingu og leigu á nýju íbúðinni minni. Eftir mikið vesen, en sem betur fer gekk það vel á endanum.

- Er orðin frekar pirruð út í opinberarstofnannir.. bæði hér og í DK. En svona eru þær víst bara... ekki breyti ég því.

- Fór að sjá Örnu frumsýna í leikritinu sínu í Iðnó.. ótrúlega flott hjá skvisunni.

- Rölti laugaveginn og horfði á nylon syngja á austurvelli.

Framundan

- mat hjá Elsu og Tóta

- Sjá Footloose

- Skipuleggja leyndó með Steinunni

- Fjölskylduafmæli.

- Upp í bústað til mömmu og pabba hennar örnu og fara á hestbak.

- vinna auðvitað.

- Boð hjá Verslóskvisunum.

Þetta er svona nokkrir punktar.... Annar ætla ég bara að reyna hafa það rosalega gott í sumar og njóta þess í botn að vera ég sjálf.

Eyða tíma í mig... gera fult af hlutum sem gera eitthvað fyrir mig.

knús og koss ***


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 22:08:28 / jenny

byrjuð að vinna....

Byrjaði bara strax að vinna eftir að ég kom heim... peningarleysið líka alveg farið að segja til sín... arrrggg....hehehe...

Það er bara ótrúlega gaman í vinnunni og ég held að ég eigi eftir að læra mikið af þessu. Er strax byrjuð að teikna viðbyggingu á einbýlishús í Garðinum:) Það gengur bara vel... það á að senda inn það sem ég var að teikna fyrir byggingarnefnd á mánudaginn... hehe.. frekar spes:) Fyndið að spá í því að ég er að vinna við eitthvað sem verður eitthvað....:)

Annar er stefnan að fara í útleigu eða sumarbústað á morgun... hlakka ekkert smá til að komast út á land og þá sérstaklega að vera með Hjalta mínum. Ekkert smá gott að vera komin heim til hans... og núna fer ég sko ekkert án hans. Sem er ljúf hugsun:) Við förum loksins saman í flugvél þegar við förum út 30. ágúst....

Jæja góða helgi gott fólk!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 09:25:51 / jenny

Ég er komin heim:)

Það er svo yndislegt að vera komin heim og já ég get nú sagt ykkur að ég tók nú góða veðrið með mér:) Búið að vera skíta kuldi og rigning mjög lengi hérna og svo kem ég og allt bara rosa gott:) vonandi þetta verði svona bara alveg þangað til ég fer aftur 30 ágúst...

Ég s.s. sagði öllum að ég kæmi heim 21. júní kl.23.55 en ég lenti 20. júní 23.55 í staðinn... Ég gaf Hjalta mínum nett sjokk...hehe... Svo klikkaði reyndar að eins að koma sólveigu á óvart en ég kom nú Pabba og Theodóru líka á óvart! Þetta var mjög skemmtilegt....

Núna er bara að fara byrja vinna og hafa það gott með fjölskyldu og vinum...

Heyrumst... BTW ég er með gamla síman minn 8683005 (endilega bjallið á mig og við gerum eitthvað).


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 12:46:49 / jenny

1 ár búið!! :)

Ég sit hérna á í mjög tómri íbúð... rúmið mitt er upp rétt hérna og ég er búin að setja svarta ruslapoka utan um það.... ótrúlega fagmanlega gert get ég sagt ykkur! Svo er allt pakkað og klárt sem fer með mér heim, og það er nú ekki lítill farangur! Hvernig á ég að halda á þessu..... Gott að soffía sé með mér... hún er svo sterk.. hehe...

Ég er ykt þreytt og mygluð... erfitt að drekka 2 daga í röð! Maður á að hætta þessu.... ekkert nema eitur!

Ég fékk staðfest á föstudaginn að ég væri búin að ná 1 árinu mínu sem er mikill léttir, ég er svo ánægð.... Gaman þegar hlutirnir ganga upp:) Svo kemur einkunnin 28. júní..:)

Ég var í afmæli í gær hjá vinkonu minni Dorthe, það var svaka stuð.... enduðum í body tekíla og fólk dansandi upp á borðum, tók fullt af myndum sem eru væntanlegar:)
Allir frá Sönderborg komu, rosa gaman að hitta þau:) Svo hitti ég þau bara ekkert fyrr en í september:(

Ég var svo í bekkjarparty á föstudaginn.... svona loka kveðjuparty:) Það var svo gaman. Það komu allir og þetta var haldið heima hjá konu sem er með mér í bekk. Hún á heima út á landi, þar var hún búin að leigja risa grill og svo sátum við í bílskúrnum... vorum með slush ice vél og risa barborð! Þetta var hreinasta snildinn...
Fólk endaði líka frekar skrautlega eftir þetta fest. Maður getur alla veganna sagt að  þetta endaði frábærlega:) Ég er búin að eiga æðislegt ár með þessu fólki og ég á svo eftir að sakna þeirra :(
Ég er búin að vera með þeim 24-7 allt árið, ég hlakka bara til að byrja aftur:)

Ég er alveg í tómu tjóni hérna.... best að fara að þrífa!! Svo ég komist nú út úr þessari íbúð:)

Sjáumst bráðum :)




» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 20:01:41 / jenny

Usss.... flytja... hvað er það...

Ég ætla mér sko að pakka öllu niður í kvöld:) Jájá ég veit að ég er bjartsýn... ég held ég sé það nú bara alltaf....hehehe

Þið trúið því ekki hvað það er gott að vera í fríi... ég get vaknað þegar ég vil, ég þarf ekki að hafa áhyggjur að ég þurfi að klára þetta fyrir þennan dag eða klára hitt fyrir hinn daginn eða eitthvað þannig.... ég get setið á kaffihúsi allan daginn... þetta er yndislegt líf:)

Ég átti frábæran afmælisdag:) Takk fyrir allar kveðjurnar... ekkert smá gott að einhver muni eftir manni þó maður búi langt í burtu:) Þetta var algjört æði.
Frekar skrítið samt að vakna og enginn kom og söng fyrir mig - enginn Theodóra:(

Ég bara vaknaði og vissi ekki alveg hvað ég átti að fara gera.... jú ég fór að þvo þvott... góð byrjun, mæli með henni:) Svo bakaði ég eitt stykki súkkulaðiköku og fór með hana í Botanisk have sem er garður hérna í Arhus. Og þangað kom Helle, Elísabet, Albert, Elvira, Anne, Tanja, Agnete, Mads, Mads, Thomas, Tobias, dorthe , Mikael og Markús.... það var rosalega kósí og gaman hjá okkur:)
Sólin skein á okkur og svaka hiti....:) Gæti ekki verið betra...

Svo skelli ég mér heim og fór í önnur föt og fór til Ulrike og fékk þar fínast lambakjöt í afmælismat:) Hún átti líka afmælið... það var rosa gaman og góður matur!
Í alla staði var þetta rosa góður dagur og ég er bara rosa ánægð!

Svo er Bogga mamma hans fannars komin og við fórum í dag og fengum okkur að borða og svona í bænum:) Svo elduðum við áðan og núna er ég bara að reyna að klára að pakka, þetta er nú ekki mikið.... en ég er bara ekki byrjuð og ég nenni varla:/

Jæja áfram jenný.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 17:25:21 / jenny

30 stiga hiti:)

EG Á AFMÆI Í DAG!!!
...STELPAN BARA ORÐIN 22ÁRA...


eg er greinilega búin að vera góð stelpa... alla veganna er frábært veður hérna... 30 stiga hiti og læti:)

Ég er búin að eiga yndislega dag hingað til:) Er að fara til Ulrike vinkonu minnar núna, hún er tvíburi minn.... fyndið að maður finnur tvíbura sinn þegar maður er orðin yfir 20...hehehe:)

Takk fyrir allt elskurnar mínar....

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 02:27:39 / jenny

ad verda 22.... eda....

Nú fer bara að líða að því að ég verði árinu eldri..... hvað á maður að gera í því? á ég að halda upp á það eða hvað...

Hvað segir fólk um súkkulaðiköku og mjólk klukkan 16 13. júní??


Eða hvað á ég gera? Mér finnst nefnilega oft þannig að maður sé að halda upp á afmælið sitt fyrir aðra.. mér finnst að maður eigi að halda upp á afmælið fyrir sig. Kannski er það vitleysa...

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 09:51:20 / jenny

ÚRSLIT...

Það verður spennandi að sjá hvernig úrslitin fara... þau eru væntanleg 16.júní svona semi en endalegu úrslitin eru í lok júní:)
S.s. er ég komin í úrslitin og ég er búin að að skila af mér stóra verkefninu mínu og það gekk bara rosa vel.

Það gekk frábærlega að kynna verkefnið mitt og ég talaði og talaði og kennari minn sagði meiri segja þegar ég stoppaði og andaði.... "Ertu ekki búin, ég held það alla veganna" hehehe.. frekar fyndið!
Svo var kona sem heitir Hanne Lerskov sem var gestakrítikari, ég var mjög ánægð með hana. Hún gaf mér góða og nothæfa krítik... eitthvað sem ég get notað áfram í náminu mínu.

Þá ég mundi bara segja að ég væri mjög sátt með þetta allt saman! þetta gekk bara mjög vel:) Ég er svo dugleg....

Ég er ekki alveg að fatta að fyrsta árið er búið.... núna þarf ég að dunda mér í möppnunni minni... klára að gera hena og skila henni á mánudaginn. Þá er komið sumarfrí!!

En svo fékk ég líka að vita í gær að ég er komin með 10 ETS stig.... ritgerðin sem ég skilaði fyrir löngu... ég náði henni...júbbí:)

Jæja núna er bara stutt í að ég komi heim... KEM 21 JÚNÍ!!! lendi 23.55:)

Hafiði það gott elskurnar mínar, ég er farin "heim"- sko niður í skóla! Er búin að búa þar síðan um páskana.... Og ég slóg metið mit í að vera vakandi lengi, það var frá mánudeginu til þriðjudags...Ég vaknaði klukkan 10 á mánudeginum  og ég fór að sofa klukkan 01 þriðjudagsnóttina ( eigilega miðvikudagur) og þetta er 36 tímar... rugl rugl!!

Sjáumst bráðum!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7